Jáááá!!

Jæja, eins og sjá má á myndinni í fréttinni hér fyrir neðan er hjólið í MOLUM!!!!
Þetta er sem sagt gamla fallega súkkan hans Dodda sem liggur þarna í rústum eftir mótorhjólaslys sem hann lenti í, í gærkvöldi. Þetta var svaaakalegt!
Ég var í vinnunni, á annarri vaktinni minni hjá Langbest 2 og gekk það svosum ágætlega nema þegar Doddi hringir í mig þá er hann staddur í sjúkrabíl á leiðinni á landspítalann í Fossvogi. Þetta var dramatískt og ég ætla ekkert að fara út í smáatriði. En elsku ástin mín slapp sem betur fer með minniháttar meiðsli (ökkla- og viðbeinsbrot, e-r tognun í mjöðm og puttum og mar hér og þar) og ég þakka guði fyrir það á hverjum degi!! Og ég þakka Dodda sjálfum líka bara fyrir að vera gáfaður og vera gallaður frá toppi til táar því það bjargaði gjörsamlega lífi hans!
Vinur hans, sem var á hinu hjólinu, þessu bláa lengra í burtu, slapp líka ótrúlega vel en fékk hinsvegar einhver fleiri og verri brot en Doddi. Þeir voru hinsvegar báðir tveir alveg ótrúlega heppnir!
Eins og sjá má á myndinni myndi maður ekki halda að maðurinn sem lenti í þessu væri "bara" ökkla- og viðbeinsbrotinn .. Þetta er svakalegt. Maður sem er vel að sér í mótorhjólageiranum gæti örugglega ekki sagt hvernig hjól þetta væri ! Eða ég svo sum veit það ekki;) hehe..

Ennnn ég ætlaði nú ekki að hafa þetta lengra í bili.. vildi bara aðeins tjá mig um þetta mál:)
Takk fyrir mig og góða nótt!
Mig langar að segja einhverja mega væmna setningu um það hvað ég er þakklát að Doddi sé ekki verr haldinn og hvað mér þykir vænt um hann en ég veit að það fellur ekki í kramið hjá lesendum :') hahaha

Svanhildur Kristínardóttir
mbl.is Mótorhjólaslys á Reykjanesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Andrea Ösp Kristinsdóttir

Krææææst!! Hjólið er ekkert ónýtt er það? neinei alls ekki!
En öll megum við þakka guði fyrir að hafa bjargað Dodda okkar frá verri meiðslum eða enn verra en það..
Bið að heilsa Dodda og hafðu það gott ;*

Andrea Ösp Kristinsdóttir, 8.9.2008 kl. 00:11

2 identicon

Gaurinn á hinu (bláa) hjólinu einmitt besti vinur minn, brá svona nett þegar ég heyrði af þessu!

Auðunn (IP-tala skráð) 8.9.2008 kl. 09:51

3 identicon

Ertu að djókaaa !!! vá las þessa grein í gær.. og var bara..shit hvernig er hægt að lifa þetta af !! :O vá vissi ekki að þetta hefði verið doddi! greinilega einhver þarna uppi sem gjörsamlega heldur utan um hann <3

 úff en gott að hann slaðaðist svona "lítið".. 

hafðu það annars gott svanhildur mín, ég les reglulega..sérstaklega þar sem ég sé þig ekki á hverjumdegi:O eins og síðustu ár í skólanum:/

Saknisakn:*

Gerður Rún (IP-tala skráð) 8.9.2008 kl. 12:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband